fimmtudagur, júní 28

Það getur vel verið...

... að ég sé rauðhærð við fyrstu sýn en þegar betur er að gáð er ljóshærð slikja yfir hárinu. Hún nær niður í hárræturnar sem eru beintengdar heilanum og geta haft áhrif á framúrskarandi líferni mitt og háttsemi.

Fyrir u.þ.b. viku síðan gerði ég heiðarlega tilraun til að fara út úr 101 og 108 Rvk. Það tók mig rúman hálfan mánuð að undirbúa mig andlega undir brottför mína og vár ég búin að mikla ferðalagið fyrir mér: Ferðalagið til Hveragerðis.

Ég settist upp í bílinn, tengdi i-podinn, setti á mig sólgleraugun og fór af stað. Ég keyrði og keyrði og keyrði, sönglaði með lögunum, dillaði bossanum og smellti í takt við og við. Allt kom fyrir ekki - ég náði að klúðra ferðalaginu gjörsamlega.

Fyrir flesta ætti keyrsla til Hveragerðis ekki að vera frásögu færandi en ekki fyrir Þórunni og beintengda ljóshærða heilann.
Ég keyrði og keyrði, keyrði inn í Mosó, gegnum Mosó, 1, 2, 3 hringtorg, og starði á Hvalfjarðargöngin. Horfði á þau í dágóðan tíma og fannst e-n veginn ekki allt vera með felldu. Horfði á þau og hugsaði: Það er... eitthvað að.

Skyndilega, skyndilega, SKYNDILEGA, áttaði ég mig: Neinei, Hveragerði og Hvalfjarðargöngin eiga ekki að passa saman. Hvalfjarðargöngin og Akureyri hljóma betur. Þannig ég sneri við, dauðskammaðist mín, náði svo að villast tvisvar í viðbót í tilraun minni til Hveragerðis.

Ég held að það sé deginum ljósara að mér er ætlað að vera farþegi í lífinu, ekki dræver.

fimmtudagur, júní 21

Ég hef ákveðið að endurlífga...

... blogg mitt á ný.

Eins og fæstir/flestir vita er ég byrjuð að vinna í lögfræðiinnheimtu Glitnis.
Allt gott um það að segja...

Hins vegar ákvað ég að gera heiðarlega tilraun til að verða kosin starfskraftur ársins í morgun og var mætt í vinnuna kl. 7:40.
Ég fékk e-n til að opna fyrir mig fyrri hurðina og svo opnaði ég seinni hurðina með aðgangskortinu mínu og gekk inn í lögfræðideildina.

Neinei... haldiði ekki að starfskraftur ársins hafi fengið sérverðlaun útaf fyrir sig: ég setti öryggiskerfi Glitnis í gang.

Fyrst stóð ég á miðju gólfinu og þorði ekki að hreyfa mig. Svo byrjaði ég að hringja: ég hringdi í yfirmanninn, hinn yfirmanninn og pabba (veit ekki alveg hvaða tilgangi pabbi átti að þjóna í þessarri aðstöðu) en allt kom fyrir ekki: Fólk er víst ekki að svara í símann fyrir 8 á morgnana.

Loks náði gáfaða Þórunn að leggja tvo og tvo saman og hringdi í panikki og svitakasti í Securitas. Fyrst fékk ég skiptiborðið. Þegar ég var búin að lýsa aðstöðu minni og lýsa því oftar en ekki yfir að ég væri ,,í alvöru starfsmaður Glitnis" hló hann og sagði að ég væri nú að hringja aðeins of seint í þá og fékk samband við höfuðstöðvar.
Þar tilkynnti maðurinn mér að ég væri ekki aðeins búin að setja í gang öryggiskerfi lögfræðideildarinnar... heldur útibúsins og að Securitas væri á leiðinni.

Jæja, starfsferill minn hefur a.m.k. náð nýjum hæðum.
Og ég mun aldrei mæta fyrr í vinnuna framar á minni litlu og stuttu ævi.

fimmtudagur, apríl 26

Hvernig er þetta gert!????

fimmtudagur, apríl 19

Nú er blogglægðinni...

... lokið.

Ég sit hérna á annarri hæð í húsi foreldra minna og er að læra undir síðasta prófið.
Ég leit út um gluggann og sé þar iðnaðarmann nágrananna vera að gera e-ð úti í garði.
Hann stóð undarlega nálægt húsinu... frekar lengi. Ég hugsaði: hvað er hann að gera?
Eftir nokkrar sek fór ég að hugsa: Nei fjandinn!

Og jú, hann var að pissa utan í húsið. Þegar hann hélt að enginn sæi til.
Svo leit hann vandlega í kringum sig, renndi upp og hélt áfram vinnu sinni.
Ég hélt að ég yrði ekki eldri.

P.S. Ég varð ekki eldri og ég mun víst útskrifast í janúar 2008! Einn önn eftir í BA... Jess.

laugardagur, mars 17

Ég fór í partý...

... í gær til Kriz. Af afskaplega undarlegum ástæðum þá fór ég út í bílinn minn til að ná í kreditkortin mín... og var skilin eftir. Bókstaflega. Þegar ég kom aftur að húsinu þá voru allir farnir...
Þannig ég ákveð að hringja á leigubíl. Samtalið fór á þessa leið:
Ég: Já, góða kvöldið - ég ætla að panta leigubíl.
Konan: Og hvert?
Ég: (Í leit að kennileiti) Eeee... fæðingardeildin við spítalann...?
Konan: Ertu á fæðingardeildinni?
Ég: Uuu já?
Konan: Þú hefur forgang.
Ég: ó... ókei.
Vesalings konan hefur haldið að ég væri með lítið kornabarn á leiðinni heim.

Svo kemur leigubíllinn og hann er ponsu undrandi...
Ég: Heyrðu, ég ætla á Barinn... Laugarvegur 22.
Hann: Jahá... hérna... ókei. Ætlarðu bara beint á djammið?
Ég: Uuu já...

Jiminn...

mánudagur, mars 12

Gleðifréttir!!!!

Tjaldurinn er mættur...

Fokk.

fimmtudagur, mars 8

Það var hringt í mig...

... í gær.
Hann: Hæ, er þetta Þórunn?
Ég: Já...
Hann: Já, ég heiti Úlfur og er að velta fyrir mér hvort þú gætir mætt í prufu fyrir stuttmynd hjá okkur í Kvikmyndaskólanum...
Ég: Jahá... ehm - hvenær og hvar?
Hann: Á morgun, frá 16-18... í kvikmyndaskólanum.
Ég: Já ókei, heyrðu jújú, ætli ég mæti ekki bara.

Eftir 10 mínútur er aftur hringt...

Hann: Hæ, er þetta Þórunn?
Ég: Já...
Hann: Já, ég heiti Úlfu...
Ég: STOPP! Ég... ég er nefnilega skyggn... og... já. Ég sé þetta fyrir mér. Það er e-s konar prufa?
Hann: eee já?
Ég: Prufa... pruuufaaaaa... fyrir... stuttmynd?
Hann: Eeee já...
Ég: Já, ég sé það núna. Kl 16-18 í Kvikmyndaskólanum...
Hann: *þögn*
Ég: Þú hringir í mig fyrir 10 mínútum.
Hann: HJÚKK! Já ókei.. ókei. Takk...bæ.